ÞAKEFNI - TRAPISA

Trapisu klæðningar eru fáanlegar í 3 stærðum:
Trapisa 12, Trapisa 18 og Trapisa 45.

Trapisa 12 er trapisuvölsuð plata 12 mm á hæðina. Trapisan er notuð til að klæða veggi og er hún klædd bæði lárétt og lóðrétt.

Trapisa 18 er trapisuvölsuð plata 18 mm á hæðina. Trapisan er notuð til að klæða veggi og er hún klædd bæði lárétt og lóðrétt. Platan er 1,07 m breið en klæðir 1,00 m þegar hún hefur verið sköruð.

Trapisa 45 er trapisuvölsuð plata 45 mm á hæðina. Trapisa 45 er notuð sem klæðning bæði á veggi og þök og hefur verið vinsæl til notkunar á stærri byggingar eins og til að mynda iðnaðarhúsnæði, útihús og skemmur. Hægt er að nota trapisu 45 bæði sem lárétta og lóðrétta klæðningu þegar klæða skal veggi. Hægt er að valsa trapisu 45 á tvo vegu, þ.e. á réttunni eða á hvolfi, með hábáruna breiða og lágbáruna mjóa eða öfugt.

TRAPISA 18

TRAPISA 45

TRAPISA 18

Efni: Stál
Þykkt: 0,5 – 0,6 mm
Ómálað: Aluzink – galvaniserað
Litað/húðað: Polyester – plastisol – plexypoly
Efni: Ál
Þykkt: 0,7-1,0
Málning: PVDF
Plötubreidd: 1070mm

TRAPISA 45

Efni: Stál
Þykkt: 0,5 – 0,6 mm
Ómálað: Aluzink – galvaniserað
Litað/húðað: Polyester – plastisol – ATH, ekki Green Coat/plexipolyester
Efni: Ál
Þykkt: 0,7-1,0
Litað/húðað:PVDF
Plötubreidd: 960 mm

TRAPISA 12

Efni: Stál
Þykkt: 0,5 – 0,6 mm
Ómálað: Aluzink – galvaniserað
Litað/húðað: Polyester – plastisol – ATH, ekki Green Coat/plexipolyester
Efni: Ál
Þykkt: 0,7-1,0
Litað/húðað:PVDF
Plötubreidd: 1200 mm

FESTINGAR FYRIR TRAPISU KLÆÐNINGAR

Mælt með að nota 12-14 festingar (þaksaum eða skrúfur) á hvern fermetra í þakklæðningu. Eins er mælt með 10-12 festingum þegar veggir eru klæddir. Platan er 960 mm en klæðningarbreiddin er 900 mm þegar hún hefur verið sköruð.