STÁL BÁRA

Málmtækni býður upp á stallað þakstál frá Lindab í klassísku þaksteinsmunstri sem kallast Norrviken. Með því að nota Lindab Norrviken þá fæst falleg og skemmtileg lausn á þakklæðningu á sérhverja byggingu, sérstaklega þær sem er ætlað að skera sig úr í útliti.

Styrkur og ending Lindab þakstáls er mikill en það er heitgalvaniserað og lakkað með veðurþolnu polyesterlakki og er fáanlegt í mörgum litum. Mjög auðvelt er að skara plötur saman. Hægt er að sérpanta hvaða lengd sem er upp að 6 metrum en lágmarkspöntun er 20 lengdarmetrar. Lindab er með yfir 30 ára reynslu í framleiðslu og sölu þakstáls á Norðurlöndum.

Hægt að fá frekari upplýsingar og ráðgjöf varðandi efnisval með því að senda okkur mail á sala@mt.is

VÖRUBÆKLINGUR

OPNUNARTÍMI

Mánudagar-Fimmtudagar
08:00-17:00
Föstudagar
08:00-17:00
Helgar
Lokað